Lyfjatextar miðlægt skráðra lyfja óaðgengilegir á lyf.is

Sem stendur er ekki hægt að nálgast ákveðna lyfjatexta í gegnum vef sérlyfjaskrár. Verið er að vinna í villunni

Hlekkir frá sérlyfjaskrá á lyfjatexta miðlægt skráðra lyfja sem hýstir eru á síðu Evrópsku lyfjastofnunarinnar hafa legið niðri í vikunni.

Verið er að vinna í því að komast að rót vandans og lagfæra eins fljótt og hægt er.

Á meðan á ástandinu varir er hægt að benda á að fletta viðkomandi lyfjum upp á heimasíðu EMA.

Leit að íslenskum lyfjatexta hjá EMA

Fylgið hlekknum sem gefinn var upp fyrir ofan. Þegar þangað er komið þarf að velja þann flokk lyfja sem lyfið tilheyrir og slá inn lyfjaheitið sem leitað er að.

Þegar yfirlitssíðan fyrir viðkomandi lyf er opnuð þarf að skruna niður hana og finna flokkinn "Product information". Lyfjatextinn er vistaður undir "*lyfjaheiti: EPAR - Product Information".

Til að nálgast íslenska lyfjatextann þarf að opna flipann "Other languages", finna "Íslenska (IS)", smella á "View" og þá ætti lyfjatextinn sem leitað var að að birtast.

Síðast uppfært: 26. júní 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat