Mikið álag hjá Lyfjastofnun

Mál tengd COVID-19 eru í forgangi. Umfjöllun annarra mála kann því að seinka.

Mikið álag er á starfsfólki um þessar mundir m.a. vegna COVID-19 málefna og sóttkvíar starfsmanna.

Viðskiptavinir mega búast við töfum á umfjöllun mála af þeim sökum. Verkefni og mál sem tengjast COVID-19 eru í forgangi hjá stofnuninni.

Varði erindið COVID-19 er ákjósanlegt að þess sé getið í viðfangsefni pósta sem sendir eru á [email protected] til að tryggja rétta forgangsröðun.

Með þökk fyrir skilning og stuðning.

Síðast uppfært: 7. janúar 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat