Ný lyf á markað 1. september 2017

Allerzine
Filmuhúðuð tafla. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 25 mg af
hýdroxýzínhýdróklóríði. Hjálparefni með þekkta verkun er laktósa. Lyfið er
ætlað til meðferðar á kvíða hjá fullorðnum. Lyfið er einnig ætlað til meðferðar
við kláða. Lyfið er lyfseðilsskylt og merkt rauðum aðvörunarþríhyrningi.

Dasselta
Filmuhúðuð tafla. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 5 mg af deslóratadíni. Hjálparefni með þekkta verkun er laktósa. Lyfið er
ætlað fullorðnum og unglingum, 12 ára og eldri, til að draga úr einkennum
ofnæmiskvefs og ofsakláða. Lyfið er lyfseðilsskylt.

Dutasteride
Medical Valley
Mjúkt hylki. Hvert hylki inniheldur 0,5 mg af dútasteríði. Lyfið
er ætlað til meðferðar við miðlungsmiklum sem og verulegum einkennum af völdum
góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli og til að draga úr hættu á bráðri
þvagteppu og þörf fyrir skurðaðgerð hjá sjúklingum með miðlungsmikil sem og
veruleg einkenni af völdum góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli. Lyfið er
lyfseðilsskylt.

Quetiapin
Hexal
Forðatafla. Hver forðatafla inniheldur 50 mg, 150 mg, 200 mg, 300 mg
eða 400 mg af quetiapini. Hjálparefni með þekkta verkun er laktósa. Lyfið er
ætlað til meðferðar við geðklofa og geðhvarfasýki og sem viðbótarmeðferð við
alvarlegum geðlægðarlotum hjá sjúklingum með alvarlegt þunglyndi. Markaðssetning
á Íslandi er háð því að Lyfjastofnun hafi staðfest að sérstök skilyrði er varða
öryggi og verkun við notkun lyfsins séu uppfyllt. Lyfið er lyfseðilsskylt.

Saxenda
Stungulyf, lausn í áfylltum lyfjapenna. Einn áfylltur lyfjapenni inniheldur 18
mg af liraglútíði í 3 ml. Lyfið er ætlað sem viðbót við hitaeiningaskert mataræði og
aukna hreyfingu til þyngdarstjórnunar hjá fullorðnum sjúklingum með og háan
upphafslíkamsþyngdarstuðul (BMI). Lyfið er undir sérstöku eftirliti til að
nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila.
Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur
er um að tengist lyfinu. Í kafla 4.8 eru upplýsingar um hvernig tilkynna á
aukaverkanir. Lyfið er lyfseðilsskylt.

Zonnic
Mint
Munnholsduft í posa. Hver posi inniheldur 4 mg af nicotini. Hjálparefni
með þekkta verkun er aspartam. Lyfið er ætlað til meðferðar við tóbaksfíkn með
því að draga úr löngun í nicotin og úr fráhvarfseinkennum, og auðvelda þannig
reykingafólki sem er reiðubúið að hætta að reykja að venja sig af tóbaki eða
til að auðvelda reykingafólki sem getur ekki eða vill ekki hætta að reykja, að
draga úr reykingum. Lyfið er selt án lyfsðils.

Sjá
lista

Síðast uppfært: 7. september 2017
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat