Nýr þáttur í hlaðvarpi Lyfjastofnunar

Fjallað um hvernig mat á lyfjum og bóluefnum fer fram

Til að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum sérfræðinganefndum. Í hlaðvarpsþættinum er sagt frá vinnu og verklagi í þeim helstu, með verkefnin sem snúa að COVID-19 faraldrinum sérstaklega í huga.

Hrefna Guðmundsdóttir, yfirlæknir Lyfjastofnunar

Sérfræðingar Lyfjastofnunar taka þátt í starfi þessara nefnda, þar á meðal Hrefna Guðmundsdóttir yfirlæknir stofnunarinnar. Hún segir í þættinum frá frá starfi þriggja nefnda, m.a. sérfræðinganefndinni sem ráðleggur með hvaða hætti skal rannsaka lyf og bóluefni hjá börnum.

Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir.

Síðast uppfært: 20. janúar 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat