Þessi vefur er ekki lengur uppfærður – opinber vefur Lyfjastofnunar er island.is/s/lyfjastofnun

Nýr umsóknarvefur – Ísland sem RMS og landsumsóknir

Nýju fyrirkomulagi varðandi umsóknir um markaðsleyfi er ætlað að einfalda og bæta samskipti við umsækjendur, auka hagræði og gera umsóknarferlið skilvirkara

Frá og með 2. nóvember næstkomandi tekur Lyfjastofnun í notkun nýtt fyrirkomulag við móttöku umsókna um pláss hjá Íslandi sem RMS í DC ferli, og þegar sótt er um pláss fyrir umsókn um landsmarkaðsleyfi á Íslandi.

Í stað þess að senda útfyllt eyðublað með tölvupósti á netfang Lyfjastofnunar, skulu umsækjendur fylla út vefform á nýjum umsóknarvef, slots.ima.is. Vefformið byggir á eyðublaði CMDh fyrir umsókn um RMS pláss.

Helstu kostir nýja fyrirkomulagsins

  • Rafrænt umsóknarkerfi: Umsækjendur sækja rafrænt um pláss fyrir DC feril með Ísland sem umsjónarland, og fyrir umsóknir um landsmarkaðsleyfi á Ísland.
  • Aukið gegnsæi: Umsóknarvefurinn veitir umsækjendum upplýsingar um í hvaða mánuðum Lyfjastofnun á laus pláss.
  • Notendavænt viðmót: Einfalt og skilvirkt kerfi sem tryggir þægilega upplifun fyrir alla notendur.

Athygli skal vakin á því að með því að fylla út umsókn um pláss er ekki tryggt að umsóknin verði samþykkt. Öllum umsóknum verður svarað.

Þessi nýjung er hluti af áframhaldandi viðleitni Lyfjastofnunar til að bæta þjónustu og auka skilvirkni í samskiptum við samstarfsaðila, umsækjendur og aðra hagsmunaaðila.

Við hvetjum hlutaðeigandi til að kynna sér nýja umsóknarvefinn og nýta sér þessa nýju lausn. Frekari upplýsingar má finna á slots.ima.is eða með því að hafa samband við Lyfjastofnun.

Síðast uppfært: 30. október 2026
Var efnið hjálplegt Já Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat