Nýtt skipurit Lyfjastofnunar

Meðal annars tekur yfirlögfræðingur stofnunarinnar sæti í framkvæmdaráði

Í dag, þann 1. apríl tekur gildi nýtt skipurit Lyfjastofnunar.

Ný deild, lögfræði og stjórnsýsla, verður til á sviði fjármála og innviða, deildarstjórinn verður Arna Gunnarsdóttir yfirlögfræðingur Lyfjastofnunar. Einnig tekur yfirlögfræðingur sæti í framkvæmdaráði við þessar breytingar.

Þá hefur nýr deildarstjóri verið ráðinn á svið mats og skráningar lyfja en þar mun Sigríður Þóra Kristinsdóttir veita deild gæðamats forstöðu.

Síðast uppfært: 1. apríl 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat