Á októberfundi PRAC var fjallað um mat á áætlun um áhættustjórnun (RMP) nokkurra lyfja, ýmist þeirra sem ekki höfðu enn fengið markaðsleyfi, eða sem uppfærsla á áætlun um áhættustjórnun markaðssettra lyfja. Auk þess var venju samkvæmt rætt um öryggisskýrslur (PSURs/ PSUSA), og um niðurstöður rannsókna sem gerðar voru til að meta öryggi markaðssettra lyfja, m.a. íbúprófens og inflúensubóluefnis.
Þá bárust ný öryggisboð (e. safety signal) vegna nokkurra lyfja, þar á meðal lyfja sem innihalda semaglútíð og líraglútíð, auk þess sem eldri öryggisboð voru til frekari umfjöllunar.