Í tengslum við stórfelldan innflutning ólöglegra peptíða hingað til lands sendi tollgæslan til greiningar tugi sýnishorna sem gerð voru upptæk úr póst- og hraðsendingum.
Europol hafði milligöngu um greininguna og fór hún fram á rannsóknastofu á vegum Evrópusambandsins. Úrtak til greiningar var valið með þeim hætti að tekið var eitt sýnishorn úr sendingum frá mörgum mismunandi seljendum í Kína.

Lítið um virk lyfjaefni, mikil óhreinindi
Í stórum hluta sýnishornanna reyndist við efnagreiningu ekki unnt að staðfesta þau virku lyfjaefni sem sagt var að varan innihéldi. Hins vegar kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum, en slíkt er algengt þegar framleiðsla á sér stað við slæm skilyrði. Notkun á slíkum lyfjum getur haft í för með sér margvísleg heilsufarsleg vandamál, sérstaklega þegar um er að ræða efni sem sprautað er inn fyrir fyrstu varnir líkamans.