Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar

Lokað verður dagana 24. og 31. desember.

Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar verður með sama sniði og fyrri ár.

Opið verður alla almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma, en þó með þeirri undantekningu að stofnunin verður lokuð dagana 24. og 31. desember. Dagana 23. desember og 27. – 30. desember verður lágmarksþjónusta. Áríðandi verkefnum verður sinnt þessa daga þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.

Takmarkanir verða í eftirtöldum málaflokkum meðan á lokun og lágmarksþjónustu stendur:

  • Klínískar lyfjarannsóknir - Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra lyfjarannsókna og breytinga á rannsóknaráætlun á umræddu tímabili.
  • CPP vottorð – CPP vottorð verða ekki gefin út á þessu tímabili og lengist afgreiðslufrestur því um þetta lágmarksþjónustutímabil.

Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 3. janúar 2022.

Síðast uppfært: 26. nóvember 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat