Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar

Opnunartími Lyfjastofnunar yfir hátíðarnar verður með sama sniði og fyrri ár

Opið verður alla almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma, kl. 9:00 - 15:00. Dagana 22. – 29. desember verður lágmarksþjónusta. Áríðandi verkefnum verður sinnt þessa daga þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti. Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 2. janúar 2024.

Takmarkanir verða í eftirtöldum málaflokkum á meðan á lokun og lágmarksþjónustu stendur

Inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna verða ekki afgreidd á tímabilinu 22. desember 2023 – 1. janúar 2024.

Lyfjastofnun mun ekki taka við umsóknum um leyfi til klínískra lyfjarannsókna og breytinga á rannsóknaráætlun, frá föstudeginum 22. desember 2023 til 2. janúar 2024 . Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 2. janúar 2024 (dagur 0). Umsækjendur eru hvattir til að miða áætlanir sínar við þessar dagsetningar.

Ekki verður tekið við eftirritunarskyldum lyfjum til eyðingar á tímabilinu 22. desember 2023 – 1. janúar 2024.

Síðast uppfært: 22. desember 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat