Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar

Opnunartími Lyfjastofnunar yfir hátíðarnar verður með svipuðu sniði og fyrri ár. Afgreiðsla stofnunarinnar verður lokuð á tímabili lágmarksþjónustu, en símtalsbeiðnum og netspjalli verður þó sinnt þá daga

Opið verður almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma, kl. 9:00 - 15:00, fyrir utan aðfangadag og gamlársdag.

Dagana 23. desember – 3. janúar 2025 verður lágmarksþjónusta. Afgreiðsla stofnunarinnar verður lokuð og því ekki tekið við eftirritunarskyldum lyfjum á þessum tíma. Netspjalli og símtalsbeiðnum verður þó sinnt þessa daga, og áríðandi verkefnum sömuleiðis þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.

Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 6. janúar 2025.

Takmarkanir verða í eftirtöldum málaflokkum á meðan á lokun og lágmarksþjónustu stendur

Inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna verða ekki afgreidd á tímabilinu 23. desember 2023 – 3. janúar 2024.

Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra rannsókna og virknirannsókna á lækningatækjum og breytinga á rannsóknaráætlun, frá 23. desember til 3. janúar 2025. Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 6. janúar.

Ekki verður tekið við eftirritunarskyldum lyfjum til eyðingar á tímabilinu 23. desember 2023 – 3. janúar 2024.

Síðast uppfært: 13. nóvember 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat