Opið verður almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma, kl. 9:00 - 15:00, fyrir utan aðfangadag og gamlársdag en þá er lokað.
Dagana 22. desember 2025 – 2. janúar 2026 verður lágmarksþjónusta og afgreiðsla stofnunarinnar lokuð. Netspjalli og símtalsbeiðnum verður þó sinnt þessa daga, og áríðandi verkefnum sömuleiðis þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.
Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 5. janúar 2026.
Takmarkanir verða í eftirtöldum málaflokkum á meðan á lokun og lágmarksþjónustu stendur
Inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna verða ekki afgreidd á tímabilinu 22. desember 2025 – 2. janúar 2026.
Ekki verður tekið við umsóknum um CPP vottorð á tímabilinu 22. desember 2025 – 2. janúar 2026.
Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra rannsókna og virknirannsókna á lækningatækjum og breytinga á rannsóknaráætlun, frá 22. desember 2025 til 2. janúar 2026. Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 5. Janúar 2026.
Tímalínur klínískra rannsókna verða frystar (e. clock-stop) frá 23. desember 2025 – 7. janúar 2026, báðir dagar meðtaldir. Dagarnir á þessu tímabili telja ekki til tímalína verkefnanna. Bakhjarlar rannsókna eru hvattir til að hafa samband við umsjónarland viðkomandi rannsóknar fyrir 23. desember ef þörf er á að gera athugasemd við þetta fyrirkomulag.