Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar verður með sama sniði og fyrri ár.
Opið verður alla almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma, en þó með þeirri undantekningu að stofnunin verður lokuð dagana 24. og 31. desember. Dagana 23. desember og 28. – 30. desember verður þó lágmarksþjónusta.
Takmarkanir verða í eftirtöldum málaflokkum á meðan lokun og lágmarksþjónusta stendur yfir:
- Klínískar lyfjarannsóknir - Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra lyfjarannsókna og breytinga á rannsóknaráætlun á umræddu tímabili.
- CPP vottorð – CPP vottorð verða ekki gefin út á þessu tímabili og lengist afgreiðslufrestur því um þetta lágmarksþjónustutímabil.
Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 4. janúar 2021.