Óskað eftir sjónarmiðum hagsmunaaðila vegna innleiðingar nýrrar evrópskrar lyfjalöggjafar

Könnunin er opin til og með 29. september nk.

Á vettvangi Evrópusambandsins er unnið að umfangsmiklum breytingum á lyfjalöggjöf sem munu að endingu taka gildi hér á landi. Innleiðing löggjafarinnar er á hendi heilbrigðisráðuneytisins, en Lyfjastofnun er nú þegar að undirbúa þær breytingar sem framundan eru og áhrif þeirra á starfsemi stofnunarinnar og hagsmunaaðila.

Í tengslum við undirbúninginn hyggst Lyfjastofnun standa fyrir upplýsingafundi fyrir hagsmunaaðila þar sem farið verður yfir væntanlegar breytingar. Til að fundurinn nýtist sem best er hagsmunaaðilum, þar á meðal markaðsleyfishöfum, heildsölum, framleiðendum, apótekum, sjúkrahúsum og öðrum tengdum aðilum, boðið að taka þátt í stuttri könnun þar sem óskað er eftir sjónarmiðum um dagskrá og fyrirkomulag fundarins.

Það tekur um 5-10 mínútur að svara könnuninni og er hún aðgengileg hér.

Svör verða eingöngu notuð til að undirbúa og móta dagskrá upplýsingafundarins og öll svör við opnum spurningum verða birt nafnlaust. Netfang sem skráð er verður eingöngu notað til að senda fundarboð. Sjá nánar um persónuvernd í persónuverndarstefnu Lyfjastofnunar.

Síðast uppfært: 18. september 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat