Takmörkuð þjónusta hjá Lyfjastofnun í vikulok

Um er að ræða fimmtudaginn 19. og föstudaginn 20. mars

Vegna ferðar starfsmanna Lyfjastofnunar erlendis verður þjónusta stofnunarinnar takmörkuð fimmtudaginn 19. og föstudaginn 20. mars.

Áríðandi verkefnum verður sinnt á opnunartíma þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti, tryggt verður að öllum málaflokkum verði sinnt eins og lög gera ráð fyrir á tímabilinu.

Svör við erindum takmarkast við lágmarksþjónustu þessa daga.
Starfsemin verður aftur með hefðbundnu sniði mánudaginn 23. mars.

Síðast uppfært: 16. mars 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat