Til apóteka: Upplýsingar um breytingar á reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja

Lyfjastofnun hefur gefið út einblöðung með upplýsingum um helstu breytingar á reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem tekur gildi 1. júlí næstkomandi. Einblöðungurinn er eingöngu gefinn út rafrænt.

Spurningar varðandi reglugerðarbreytinguna, ef einhverjar, óskast sendar til Lyfjastofnunar á netfangið [email protected] . Öllum spurningum verður svarað en auk þess verða spurningar almenns eðlis birtar á vef Lyfjastofnunar án persónugreinanlegra upplýsinga. 

Síðast uppfært: 20. júní 2018
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat