Langvarandi skortur hefur verið á Vivelle Dot forðaplástrum í öllum styrkleikum. Sambærilegt lyf, Estradiol Hexal, kom á markað 1. ágúst sl. og er lyfið fáanlegt í sömu styrkleikum og sama lyfjaformi og Vivelle Dot. Framleiðandi lyfsins er Hexal.
Þar sem Vivelle Dot og Estradiol Hexal eru útskiptanleg lyf á svokallaðri skiptiskrá er ekki þörf á nýrri lyfjaávísun hjá þeim lyfjanotendum sem eiga gilda ávísun á Vivelle Dot. Starfsfólk apóteksins mun afgreiða Estradiol Hexal í staðinn fyrir Vivelle Dot í þeim styrkleika sem læknirinn ávísaði.
Skorturinn á Vivelle Dot var framan af leystur með ýmsum undanþágulyfjum en frá og með 1. ágúst sl. var lyfið Estradiol Hexal markaðssett.
Nánari upplýsingar um Estradiol Hexal má nálgast í fylgiseðli sem er aðgengilegur á lyf.is.
Tilkynnum grun um um aukaverkun lyfja
Lyfjastofnun minnir á að hver sem er getur tilkynnt grun um aukaverkun lyfs til Lyfjastofnunar. Heilbrigðisstarfsfólk sem og lyfjanotendur eru hvattir til að tilkynna allan grun um aukaverkun.