Vakin er athygli á breytingum á ATC-flokkunarkerfi lyfja fyrir menn/dýr sem tóku gildi 1. janúar sl. Breytingarnar eru samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Breytingar á ATC fyrir mannalyf.
Breytingar á ATCvet fyrir dýralyf.
Nýir ATCvet flokkar fyrir dýralyf.
ATC-flokkunarkerfið hefur verið uppfært á vef Lyfjastofnunar í samræmi við ofangreindar breytingar.
Markaðsleyfishafar skulu sækja um breytingu á SmPC þar sem við á, í samræmi við reglur þar að lútandi. Ósamræmi gæti orðið milli ATC-listans og SmPC viðkomandi lyfja þar til markaðsleyfishafi hefur sent Lyfjastofnun umsókn um slíka um breytingu og hún afgreidd.