Til markaðsleyfishafa – íslenskar þýðingar á nýjum staðalheitum

Athugasemdir má senda til Lyfjastofnunar á meðfylgjandi skjali

Drög að nýjum íslenskum þýðingum á staðalheitum fyrir lyfjaform, pakkningar eða íkomuleiðum lyfja sem evrópska lyfjaskráin (EDQM) hefur samþykkt liggja nú fyrir. Um er að ræða 27 ný staðalheiti. Í allmörgum tilfellum eru þetta ný samsett staðalheiti (combined terms) þar sem skeytt er saman tveimur eða fleiri áður samþykktum þýðingum.

Áður en staðalheiti verða samþykkt og send EDQM til birtingar er hagsmunaaðilum boðið að senda Lyfjastofnun athugasemdir við þýðingarnar, sjá meðfylgjandi skjal.

Athugasemdir ásamt greinargóðum útskýringum, og ef við á nýjum tillögum að þýðingum, leiðréttingum eða ábendingum, skulu sendar í því skjali sem er til umsagnar, þ.e. í dálkinn lengst til hægri. Senda skal skjalið á [email protected], auðkennt „Athugasemdir við staðalheiti 2021050445“, eigi síðar en 15. júní n.k. Athugið að útskýra vel athugasemdir svo ekki fari á milli mála hvað átt er við og af hverju athugasemdin er gerð.

Síðast uppfært: 1. júní 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat