Til markaðsleyfishafa – íslenskar þýðingar á nýjum staðalheitum

Drög að nýjum, íslenskum þýðingum á staðalheitum fyrir lyfjaform og pakkningar lyfja sem evrópska lyfjaskráin (EDQM) hefur samþykkt liggja nú fyrir. Um er að ræða 17 ný staðalheiti. Í allmörgum tilfellum eru þetta ný samsett staðalheiti (combined terms) þar sem skeytt er saman tveimur eða fleiri áður samþykktum þýðingum lyfjaforma/íkomuleiða/umbúða.

Áður en staðalheiti verða samþykkt og send EDQM til birtingar er hagsmunaaðilum boðið að senda Lyfjastofnun athugasemdir við þýðingarnar, sjá meðfylgjandi skjal .  

Athugasemdir ásamt greinargóðum útskýringum, og ef við á, nýjum tillögum að þýðingum, leiðréttingum eða ábendingum skulu sendar í því skjali sem er til umsagnar, þ.e. í dálkinn lengst til hægri. Þær skulu berast eigi síðar en 31. október n.k. á netfangið [email protected],  auðkennt „Athugasemdir við staðalheiti 2018100241“. Athugið að útskýra vel athugasemdir svo ekki fari á milli mála við hvað er átt og af hverju athugasemdin er gerð.

Síðast uppfært: 19. október 2018
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat