Tilkynnum lyfjaskort

Einstaklingar og heilbrigðisstarfsfólk eru hvött til að tilkynna lyfjaskort á vef Lyfjastofnunar

Það kemur fyrir að lyf sem alla jafna er á markaði á Íslandi skortir um tíma. Fyrir því geta verið ýmsar ástæður svo sem vandamál í framleiðsluferli, aukin eftirspurn eða tafir á sendingum með lyf. Sem betur fer er í langflestum tilvikum unnt að leysa lyfjaskortinn án aðkomu læknis, en þó getur það gerst að læknir þarf að íhuga aðra lyfjameðferð. Nánari upplýsingar um ástæður og úrræði má finna á vef lyfjastofnunar.

Þegar tilkynna þarf skort - allir geta tilkynnt

Markaðsleyfishöfum eða umboðsmönnum þeirra ber að tilkynna fyrirsjáanlegan lyfjaskort til Lyfjastofnunar með minnst tveggja mánaða fyrirvara. Sé það gert veitist svigrúm til að leita úrræða. Þrátt fyrir þetta getur komið til þess að lyf skortir í einhvern tíma.

Afar mikilvægt er að allir sem verða varir við lyfjaskort aðstoði við að koma upplýsingunum á framfæri svo hægt sé að bregðast við sem fyrst

Almenningur og heilbrigðisstarfsfólk, s.s. starfsfólk apóteka getur látið vita ef lyfjaskorts verður vart í nærumhverfinu. Það er gert með nafnlausri tilkynningu í gegnum vef Lyfjastofnunar. Upplýsingar um lyfjaskort veita yfirsýn og gefa Lyfjastofnun þar með möguleika á að bregðast við.

Lyfjaskortur og aðgengisvandi er sitt hvað

Mikilvægt er að greina á milli lyfjaskorts og aðgengisvanda. Aðgengisvandi er það þegar lyf sem þörf er fyrir, er ekki á íslenskum markaði, þar sem ekkert lyfjafyrirtæki hefur tekið að sér að markaðssetja lyfið á Íslandi. Slíkt er ávallt ákvörðun viðkomandi markaðsleyfishafa. 

Rétt er að benda á að lyfjaskortur er ekki séríslenskt fyrirbæri. Svipuð staða kemur einnig upp í öðrum löndum, en markaður fyrir lyf er viðkvæmari á Íslandi en víða annars staðar vegna smæðar sinnar og legu landsins.

Síðast uppfært: 11. ágúst 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat