Undanþágulyf sem oftast var ávísað í ágúst 2026

Mikilvægt er að lyf, sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu, verði skráð og/eða markaðssett

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja, með það að markmiði að koma í veg fyrir að lyfjaskortur hafi áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga markaðssettum lyfjum.

Áfram er markmið Lyfjastofnunar, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð og/eða markaðssett. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu og/eða markaðssetningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Hér fyrir neðan eru tveir listar. Sá fyrri sýnir þau undanþágulyf sem voru í notkun í ágúst sl. vegna lyfjaskorts. Sá síðari sýnir þau tuttugu lyf sem læknar ávísuðu oftast í ágúst 2026.

Athygli skal vakin á því að í sérstökum tilfellum getur Lyfjastofnun heimilað lyfjafræðingum apóteka að breyta lyfjaávísun læknis á tiltekið lyf þannig að ávísunin gildi fyrir það undanþágulyf sem búið er að heimila. Heimildin er veitt að undangengnu mati á öryggi við slíka breytingu. Úrræðið er einungis notað þegar ljóst þykir að án aðgerða kæmi upp íþyngjandi staða fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Í þeim tilfellum eru ávísanirnar hefðbundnar þó að um undanþágulyf sé að ræða við afgreiðslu og koma því ekki fram á listunum sem fylgja.

Undanþágulyf sem voru í notkun í ágúst vegna lyfjaskorts

Í listanum eru upplýsingar um heiti undanþágulyfsins, lyfjaform, fjölda ávísana, heiti lyfsins sem undanþágulyfið leysir af hólmi, markaðsleyfishafi þess, umboðsaðili og heildsala.

LyfjaheitiLyfjaformFjöldi
afgr.
ávísana
Lyf
í skorti
Markaðsl.h.
lyfs í skorti
UmboðsaðiliHeildsala
1BUPRENORPHIN
/NALOXON
tungur.t66ZubsolvAccord Healthcare S.L.U.VistorDistica
2DUSPATAL RETARDforðahlk61Duspaltin RetardViatris ApsIcepharmaParlogis

Tuttugu undanþágulyf sem oftast var ávísað í ágúst 2026

 LyfjaheitiATCLyfjaformVirkt
innihaldsefni
Fjöldi
afgr.ávísana
1PROPRANOLOLC07AA05filmhtflPropranololum228
 mixtúraPropranololum3
 Samtals231
2MiralaxA06AD15lausndufMacrogolum95
 Samtals95
3FINACEAD10AX03hlaupAcidum azelaicum80
 Samtals80
4Levomepromazine OrionN05AA02töflurLevomepromazinum79
 Samtals79
5DERMOVATD07AD01kremClobetasolum72
 Samtals72
6HIRUDOID SALVEC05BA01kremHeparinoidum72
 Samtals72
7DOCITONC07AA05filmhtflPropranololum64
 forðahlkPropranololum5
 Samtals69
8PROPRA-RATIOPHARMC07AA05filmhtflPropranololum69
 Samtals69
9REGAIN FORTED11AX01áburðurMinoxidilum68
 Samtals68
10BUPRENORPHIN/NALOXON*N07BC51tungur.tBuprenorfinum í blöndum66
 Samtals66
11SENEASEA06AB06töflurSenna62
 Samtals62
12DUSPATAL RETARD*A03AA04forðahlkMebeverinum61
 Samtals61
13PrednisolonH02AB06töflurPrednisolonum60
 Samtals60
14PERIACTINR06AX02töflurCyproheptadinum59
 Samtals59
15Quinine SulfateP01BC01töflurChininii58
 Samtals58
16SEM MIXTÚRA - FORSKRIFTARLYFR05DA20mixtúracombinations57
 Samtals57
17CLONIDINEN02CX02töflurClonidinum54
 Samtals54
18MAGNESIUM EQL PHARMAG04BX01töflurmagnesium hydroxide51
 Samtals51
19LargactilN05AA01töflurChlorpromazinum50
 Samtals50
20QuantalanC10AC01duftColestyraminum49
 Samtals49

*lyfi ávísað til að mæta tímabundnum skorti skráðra lyfja

Síðast uppfært: 7. september 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat