Undanþágulyf sem oftast var ávísað í apríl 2022

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau 24 lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í apríl 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.

LyfjaheitiLyfjaformVirkt innihaldsefniNorrænt vnr.Fj. áv.
DoloproctEndaþarmsstílarlídókaín / flúókortólón980286478
DoloproctEndaþarmskremlídókaín / flúókortólón982331330
XyloproctEndaþarmsstílarlídókaín / hýdrókortisón980369202
Sem mixtúraMixtúrakódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt962234, 962242274
XyloproctEndaþarmskremlídókaín / hýdrókortisón980377140
SenokotTöflursenna980533, 980541139
Morfin "dak"Töflurmorfín969181, 969777106
Quinine sulfateTöflurkínín97559294
MiralaxLausnarduftpólýetýlen glýkol95882985
UtrogestHylkiprógesterón98749878
BetapredLausnarduftbetametasón799772
Glycerol infantEndaþarmsstílarglýceról94485268
HalcionTöflurtríazólam98834766
Alimemazine orifarmDroparalímemazín98278765
NozinanTöflurlevómeprómazín97986758
Levome-promazine orion (25 mg)Töflurlevómeprómazín98199558
RohypnolFilmuhúðaðar töflurflúnítrazepam98059147
Bromam (6 mg)Töflurbrómazepam98462644
Trimipramin neurax-pharmTöflurtrímipramín97969343
RinexinForðatöflurfenýlprópanólamín98279542
CondylineHúðlausnpódófýllótoxín97583141
PeriactinTöflurcýpróheptadín96411540
EmgesanTöflurmagnesíum hýdroxíð97543538
OxybutininTöfluroxýbútýnín98341233

Síðast uppfært: 20. maí 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat