Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.
Listinn hér að neðan sýnir þau 25 lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í desember 2021 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.
| Lyfjaheiti | Lyfjaform | Virkt innihaldsefni | Norrænt vnr. | Fj. áv. |
| Doloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / flúókortólón | 980286 | 419 |
| Doloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / flúókortólón | 982331 | 225 |
| Sem mixtúra | Mixtúra | kódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt | 962234, 962242 | 191 |
| Xyloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / hýdrókortisón | 980369 | 182 |
| Senokot | Töflur | senna | 980533, 980541 | 176 |
| Xyloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / hýdrókortisón | 980377 | 116 |
| Glycerol infant | Endaþarmsstílar | glýceról | 944852 | 96 |
| Quinine sulfate | Töflur | kínín | 975592 | 96 |
| Alimemazine orifarm | Dropar | alímemazín | 982787 | 74 |
| Miralax | Lausnarduft | pólýetýlen glýkol | 958829 | 72 |
| Utrogest | Hylki | Prógesterón | 987498 | 64 |
| Bromam (6 mg) | Töflur | brómazepam | 984626 | 59 |
| Emgesan | Töflur | Magnesíum hýdroxíð | 975435 | 55 |
| Levome-promazine orion (25 mg) | Töflur | levómeprómazín | 981995 | 54 |
| Trimipramin neuraxpharm | Töflur | trímipramín | 979693 | 50 |
| Levome-promazine orion (5 mg) | Töflur | levómeprómazín | 980955 | 49 |
| Mogadon | Töflur | nítrazepam | 981169 | 49 |
| Nozinan | Töflur | levómeprómazín | 979867 | 48 |
| Betapred | Lausnarduft | betametasón | 007997 | 47 |
| Anafranil | Töflur | klómípramín | 971946 | 47 |
| Rinexin | Forðatöflur | fenýlprópanólamín | 982795 | 47 |
| Condyline | Húðlausn | pódófýllótoxín | 975831 | 46 |
| Rohypnol | Filmuhúðaðar töflur | flúnítrazepam | 980591 | 44 |
| Morfin "dak" | Töflur | morfín | 969181 | 41 |
| Bromam (3 mg) | Töflur | brómazepam | 407668 | 37 |