Undanþágulyf sem oftast var ávísað í desember 2022

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast í desember árið 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja.

Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.

LyfjaheitiLyfjaformVirkt innihaldsefniNorrænt vnr.Fj. áv.
DoloproctEndaþarmsstílarlídókaín / flúókortólón980286480
DoloproctEndaþarmskremlídókaín / flúókortólón982331391
Sem mixtúraMixtúrakódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt962234, 962242366
UtrogestHylkiprógesterón987498273
XyloproctEndaþarmsstílarlídókaín / hýdrókortisón980369179
XyloproctEndaþarmskremlídókaín / hýdrókortisón980377119
Quinine sulfateTöflurkínín97559290
SenokotTöflursenna98053390
DigoxinTöflurDigoxín99036883
MiralaxLausnarduftpólýetýlen glýkol95882982
BetapretlausnartöflurBetametasón799779
HalcionTöflurtríazólam98834776
Levomepromazine orionTöflurlevómeprómazín98095571
Glycerol infantEndaþarmsstílarglýceról94485268
BromamTöflurbrómazepam98462663
Morfin "Dak"Töflurmorfín96918149
PeriactinTöflurcýpróheptadín96411547
EmgesanTöflurMagnesíum hýdroxíð97543546
RohypnolFilmhúðaðar töflurFlúnítrazepam98059146
Síðast uppfært: 25. janúar 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat