Undanþágulyf sem oftast var ávísað í janúar 2022

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð.

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í janúar 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.

LyfjaheitiLyfjaformVirkt innihaldsefniNorrænt vnr.Fj. áv.
DoloproctEndaþarmsstílarlídókaín / flúókortólón980286194
DoloproctEndaþarmskremlídókaín / flúókortólón982331120
XyloproctEndaþarmsstílarlídókaín / hýdrókortisón98036990
SenokotTöflursenna980533, 98054172
XyloproctEndaþarmskremlídókaín / hýdrókortisón98037758
Sem mixtúraMixtúrakódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt96223456
Quinine sulfateTöflurkínín97559254
Alimemazine orifarmDroparalímemazín98278752
MiralaxLausnarduftpólýetýlen glýkol95882942
EmgesanTöflurMagnesíum hýdroxíð97543537
Glycerol infantEndaþarmsstílarglýceról94485233
NozinanTöflurlevómeprómazín97986728
Levome-promazine orion (25 mg)Töflurlevómeprómazín98199526
RohypnolFilmuhúðaðar töflurflúnítrazepam98059125
UtrogestHylkiPrógesterón98749823
Trimipramin neuraxpharmTöflurtrímipramín97969322
CondylineHúðlausnpódófýllótoxín97583120
MethoprazineTöflurlevómeprómazín98119320
Bromam (6 mg)Töflurbrómazepam98462619
Morfin "dak"Töflurmorfín96918118
Levome-promazine orion (5 mg)Töflurlevómeprómazín98095517
Regain forteÁburðurMínoxidíl97987517
Síðast uppfært: 9. febrúar 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat