Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.
Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast í júlí árið 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.
| Lyfjaheiti | Lyfjaform | Virkt innihaldsefni | Norrænt vnr. | Fj. áv. | 
| Doloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / flúókortólón | 980286 | 466 | 
| Doloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / flúókortólón | 982331 | 399 | 
| Sem mixtúra | Mixtúra | kódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt | 962234, 962242 | 158 | 
| Xyloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / hýdrókortisón | 980369 | 144 | 
| Senokot | Töflur | senna | 980533, 980541 | 136 | 
| Xyloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / hýdrókortisón | 980377 | 117 | 
| Quinine sulfate | Töflur | kínín | 975592 | 93 | 
| Utrogest | Hylki | prógesterón | 987498 | 74 | 
| Alimemazine orifarm | Dropar | alímemazín | 982787 | 72 | 
| Miralax | Lausnarduft | pólýetýlen glýkol | 958829 | 71 | 
| Bromam (6 mg) | Töflur | brómazepam | 984626 | 63 | 
| Thiamazol | Töflur | thiamazole | 988967 | 63 | 
| Halcion | Töflur | tríazólam | 988347 | 59 | 
| Glycerol infant | Endaþarmsstílar | glýceról | 944852 | 57 | 
| Rohypnol | Filmhúðaðar töflur | flúnítrazepam | 980591 | 50 | 
| Levome-promazine orion (5 mg) | Töflur | levómeprómazín | 980955 | 45 | 
| Trimipramin neuraxpharm | Töflur | trímipramín | 979693 | 45 | 
| Betapred | Lausnartöflur | betametasón | 7997 | 40 | 
| Morfin "dak" | Töflur | morfín | 969181 | 37 | 
| Nozinan | Töflur | levómeprómazín | 979867 | 37 | 
| Condyline | Húðlausn | pódófýllótoxín | 975831 | 36 |