Undanþágulyf sem oftast var ávísað í júlí og ágúst 2024

Mikilvægt að að lyf, sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu, verði skráð. Upplýsingum um notkun undanþágulyfja verður framvegis miðlað mánaðarlega og markaðsleyfishafa getið

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja, með það að markmiði að koma í veg fyrir að lyfjaskortur hafi áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast í júlí og ágúst 2024, þar með talin lyf sem ávísað var til að mæta tímabundnum skorti skráðra lyfja, stjörnumerkt til aðgreiningar.

Athygli skal vakin á því að í sérstökum tilfellum getur Lyfjastofnun heimilað lyfjafræðingum apóteka að breyta lyfjaávísun læknis á tiltekið lyf þannig að ávísunin gildi fyrir það undanþágulyf sem búið er að heimila. Úrræðið er einungis notað þegar ljóst þykir að án aðgerða kæmi upp íþyngjandi staða fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsmenn. Í þeim tilfellum eru ávísanirnar hefðbundnar þó að um undanþágulyf sé að ræða við afgreiðslu og koma því ekki fram á listanum sem hér fylgir.

Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.

Lyfjaheiti Lyfjaform Innihaldsefni  Norrænt vörunúmer Fjöldi afgr. ávísana
Magnesia Dak*filmhtflMagnesíum hýdroxíð 988511 1.144
988529 897
991085 312
Samtals 2.353
Keflex*mixt.kyrCefalexinum 992984 380
Samtals 380
töflurCefalexinum 994972 302
Samtals 302
UtrogesthylkiProgesteronum 987498 571
Samtals 571
PropranololfilmhtflPropranololum 993015 328
989759 121
Samtals 449
Mst ContinusforðatflMorphinum 996811 168
990441 122
Samtals 290
MykundexmixtúraNystatinum 989949 228
Samtals 228
Quinine SulfatetöflurChininii 975592 186
Samtals 186
UtrogestanhylkiProgesteronum 989832 180
Samtals 180
Sem mixtúramixtúracombinations 962234 174
Samtals 174
SeneasetöflurSenna 993734 173
Samtals 173
Cefalexín W&H*hylkiCefalexinum 995003 119
Samtals 119
Emgesantöflurmagnesium hydroxide 975435 115
Samtals 115
Levomepromazine OriontöflurLevomepromazinum 980955 107
Samtals 107
NozinantöflurLevomepromazinum 979867 102
Samtals 102
Síðast uppfært: 2. október 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat