Undanþágulyf sem oftast var ávísað í júlí

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð.

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau 25 lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í júlí 2021 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.

Lyfjaheiti

Lyfjaform

Virkt innihaldsefni

Norrænt vnr.

Fj. áv.

Doloproct Endaþarmsstílar lídókaín / flúókortólón 980286 364
Doloproct Endaþarmskrem lídókaín / flúókortólón 982331 231
Xyloproct Endaþarmsstílar lídókaín / hýdrókortisón 980369 203
Xyloproct Endaþarmskrem lídókaín / hýdrókortisón 980377 138
Senokot Töflur senna 980533, 980541 146
Sem mixtúra Mixtúra kódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt 962234, 962242 132
Quinine sulfate Töflur kínín 975592 91
Trimipramin neuraxpharm Töflur trímipramín 979693 84
Bromam (6 mg) Töflur brómazepam 984626 64
Rohypnol Filmuhúðaðar töflur flúnítrazepam 980591 61
Methoprazine Töflur levómeprómazín 981193 56
Glycerol infant Endaþarmsstílar glýceról 944852 54
Morfin "DAK" Töflur morfín 969181, 969777 58
Alimemazine orifarm Dropar alímemazín 982787 52
Bromam (3 mg) Töflur brómazepam 407668 50
Miralax Lausnarduft pólýetýlen glýkol 958829 48
Levo-mepromazine orion (5 mg) Töflur levómeprómazín 980955 46
Levo-mepromazine orion (25 mg) Töflur levómeprómazín 981995 42
Emgesan Töflur magnesíum hýdróxíð 975435 40
Mogadon Töflur nítrazepam 981169 39
Nozinan Töflur levómeprómazín 979867 38
Condyline Húðlausn pódófýllótoxín 975831 36
Rinexin Forðatöflur fenýlprópanólamín 982795 31
Phenhydan Töflur fenýtóín 972176 22
Síðast uppfært: 3. september 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat