Undanþágulyf sem oftast var ávísað í maí 2022

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau 25 lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í maí 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.

LyfjaheitiLyfjaformVirkt innihaldsefniNorrænt vnr.Fj. áv.
DoloproctEndaþarmsstílarlídókaín / flúókortólón980286499
DoloproctEndaþarmskremlídókaín / flúókortólón982331415
XyloproctEndaþarmsstílarlídókaín / hýdrókortisón980369230
Sem mixtúraMixtúrakódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt962234, 962242215
XyloproctEndaþarmskremlídókaín / hýdrókortisón980377191
SenokotTöflursenna980533, 980541185
UtrogestHylkiprógesterón987498113
Quinine sulfateTöflurkínín97559292
Alimemazine orifarmDroparalímemazín98278791
MiralaxLausnarduftpólýetýlen glýkol95882985
BetapredLausnarduftbetametasón799785
Levome-promazine orion (5 mg)Töflurlevómeprómazín98095583
HalcionTöflurtríazólam98834779
Trimipramin neurax-pharmTöflurtrímipramín97969372
Bromam (6 mg)Töflurbrómazepam98462668
Glycerol infantEndaþarmsstílarglýceról94485267
Morfin "dak"Töflurmorfín96918164
RohypnolFilmhúðaðar töflurflúnítrazepam98059164
CondylineHúðlausnpódófýllótoxín97583155
EmgesanTöflurmagnesíum hýdroxíð97543554
Levome-promazine orion (25 mg)Töflurlevómeprómazín98199550
ThiamazolTöflurthiamazole98896747
PeriactinTöflurcýpróheptadín96411545
MogadonTöflurNítrazepam98116943
NozinanTöflurlevómeprómazín97986740
Síðast uppfært: 19. júlí 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat