Undanþágulyf sem oftast var ávísað í mars 2022

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð.

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau 25 lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í mars 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.

LyfjaheitiLyfjaformVirkt innihaldsefniNorrænt vnr.Fj. áv.
DoloproctEndaþarmsstílarlídókaín / flúókortólón980286423
Sem mixtúraMixtúrakódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt962234, 962242359
DoloproctEndaþarmskremlídókaín / flúókortólón982331288
XyloproctEndaþarmsstílarlídókaín / hýdrókortisón980369200
SenokotTöflursenna980533, 980541178
XyloproctEndaþarmskremlídókaín / hýdrókortisón980377136
MiralaxLausnarduftpólýetýlen glýkol958829112
Alimemazine orifarmDroparalímemazín982787108
UtrogestHylkiPrógesterón987498107
Quinine sulfateTöflurkínín97559283
Levome-promazine orion (5 mg)Töflurlevómeprómazín98095579
Glycerol infantEndaþarmsstílarglýceról94485273
HalcionTöflurTríazólam98834773
EmgesanTöflurMagnesíum hýdroxíð97543560
PeriactinTöflurcýpróheptadín96411558
CondylineHúðlausnpódófýllótoxín97583152
Trimipramin neuraxpharmTöflurtrímipramín97969351
RinexinForðatöflurfenýlprópanólamín98279550
Bromam (6 mg)Töflurbrómazepam98462649
BetapredLausnarduftbetametasón799747
RohypnolFilmuhúðaðar töflurflúnítrazepam98059147
Levome-promazine orion (25 mg)Töflurlevómeprómazín98199546
NozinanTöflurlevómeprómazín97986742
AnafranilTöflurklómípramín97194636
MethoprazineTöflurlevómeprómazín98119336
Síðast uppfært: 19. apríl 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat