Undanþágulyf sem oftast var ávísað í mars 2026

Mikilvægt er að lyf, sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu, verði skráð og/eða markaðssett

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja, með það að markmiði að koma í veg fyrir að lyfjaskortur hafi áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga markaðssettum lyfjum.

Áfram er markmið Lyfjastofnunar, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð og/eða markaðssett. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu og/eða markaðssetningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Hér fyrir neðan eru tveir listar. Sá fyrri sýnir þau undanþágulyf sem voru í notkun í mars sl. vegna lyfjaskorts. Sá síðari sýnir þau tuttugu lyf sem læknar ávísuðu oftast í mars 2026.

Athygli skal vakin á því að í sérstökum tilfellum getur Lyfjastofnun heimilað lyfjafræðingum apóteka að breyta lyfjaávísun læknis á tiltekið lyf þannig að ávísunin gildi fyrir það undanþágulyf sem búið er að heimila. Heimildin er veitt að undangengnu mati á öryggi við slíka breytingu. Úrræðið er einungis notað þegar ljóst þykir að án aðgerða kæmi upp íþyngjandi staða fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Í þeim tilfellum eru ávísanirnar hefðbundnar þó að um undanþágulyf sé að ræða við afgreiðslu og koma því ekki fram á listunum sem fylgja.

Undanþágulyf sem voru í notkun í mars vegna lyfjaskorts

Í listanum eru upplýsingar um heiti undanþágulyfsins, lyfjaform, fjölda ávísana, heiti lyfsins sem undanþágulyfið leysir af hólmi, markaðsleyfishafi þess, umboðsaðili og heildsala.

 LyfjaheitiLyfjaformFjöldi
afgr. ávísana
Lyf í skortiMarkaðsl.h.lyfs
í skorti
UmboðsaðiliHeildsala
1Estramonforðaplástur 100Vivelle dotSandozVistorDistica
2DUSPATAL RETARDforðahylki66Duspaltin
Retard
Viatris ApsIcepharmaParlogis
3Dermovatsmyrsli61DermovatGlaxoSmithKline Pharma A/SVistorDistica

Tuttugu undanþágulyf sem oftast var ávísað í mars 2026

 LyfjaheitiATCLyfjaformVirkt
innihaldsefni
Norrænt
vnr.
Fjöldi
afgr.ávísana
1PROPRANOLOLC07AA05filmhtflPropranololum993015181
 98975994
 Samtals275
 mixtúraPropranololum9726131
 Samtals1
2SHINGRIXJ07BK03stszoster, purified antigen987026168
 Samtals168
3Miralax lausnduf 98862869
 95882966
 Samtals135
4PROPRA-RATIOPHARMC07AA05filmhtflPropranololum99668975
 99669744
 Samtals119
5SENEASEA06AB06töflurSenna993734118
 Samtals118
6SEM MIXTÚRA - FORSKRIFTARLYFR05DA20mixtúracombinations96223473
 96224243
 Samtals116
7Levomepromazine OrionN05AA02töflurLevomepromazinum98095553
 98199537
 98653114
 Samtals104
8ESTRAMON*G03CA03forðaplEstradiolum96365240
 99857840
 99855212
 9958638
 Samtals100
9PERIACTINR06AX02töflurCyproheptadinum96411591
 Samtals91
10REGAIN FORTED11AX01áburðurMinoxidilum97987591
 Samtals91
11AtaraxN05BB01filmhtflHydroxyzinum05450647
 Samtals47
 mixtúraHydroxyzinum97645642
 Samtals42
12HIRUDOID SALVEC05BA01kremHeparinoidum99675474
 Samtals74
13Quinine SulfateP01BC01töflurChininii97559274
 Samtals74
14PrednisolonH02AB06töflurPrednisolonum97577465
 9874225
 9851292
 Samtals72
15DOCITONC07AA05filmhtflPropranololum99507238
 99730627
 9752752
 Samtals67
 forðahlkPropranololum9887352
 Samtals2
16FINACEAD10AX03hlaupAcidum azelaicum98039368
 Samtals68
17DUSPATAL RETARD*A03AA04forðahlkMebeverinum97511748
 98666118
 Samtals66
18CLONIDINEN02CX02töflurClonidinum97640935
 98631729
 Samtals64
19Morfin "DAK"N02AA01töflurMorphinum96977733
 96918131
 Samtals64
20DERMOVAT*D07AD01kremClobetasolum99239561
 Samtals61

*lyfi ávísað til að mæta tímabundnum skorti skráðra lyfja

Síðast uppfært: 20. apríl 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat