Undanþágulyf sem oftast var ávísað í nóvember 2022

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast í nóvember árið 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.

LyfjaheitiLyfjaformVirkt innihaldsefniNorrænt vnr.Fj. áv.
DoloproctEndaþarmsstílarlídókaín / flúókortólón980286547
DoloproctEndaþarmskremlídókaín / flúókortólón982331433
UtrogestHylkiprógesterón987498427
Sem mixtúraMixtúrakódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt962234, 962242230
XyloproctEndaþarmsstílarlídókaín / hýdrókortisón980369173
XyloproctEndaþarmskremlídókaín / hýdrókortisón980377155
SenokotTöflursenna980533, 980541130
DigoxinTöflurDigoxín990368130
BetapretlausnartöflurBetametasón799798
Quinine sulfateTöflurkínín97559290
EmgesanTöflurMagnesíum hýdroxíð97543577
MiralaxLausnarduftpólýetýlen glýkol95882973
Glycerol infantEndaþarmsstílarglýceról94485266
BromamTöflurbrómazepam98462666
Levomepromazine orionTöflurlevómeprómazín98095563
HalcionTöflurtríazólam98834760
Trimipramin neuraxpharmTöflurtrímipramín97969354
NozinanTöflurlevómeprómazín97986754
UtrogestanHylkiprógesterón98983252
PeriactinTöflurcýpróheptadín96411551
RohypnolFilmhúðaðar töflurFlúnítrazepam98059144
Morfin "Dak"Töflurmorfín96918144
Levomepromazine orionTöflurlevómeprómazín98199542
FinaceaHlaupAzelainsýra98039340
RinexinForðatöflurfenýlprópanólamín98279538
Regain forteÁburðurMínoxidíl97987538
MogadonTöflurNítrazepam98116937
SkinorenKremAzelainsýra98038535
Síðast uppfært: 15. desember 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat