Undanþágulyf sem oftast var ávísað í nóvember

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð.

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau 25 lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í nóvember 2021 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.

LyfjaheitiLyfjaformVirkt innihaldsefniNorrænt vnr.Fj. áv.
DoloproctEndaþarmsstílarlídókaín / flúókortólón980286429
DoloproctEndaþarmskremlídókaín / flúókortólón982331262
Sem mixtúraMixtúrakódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt962234, 962242237
XyloproctEndaþarmsstílarlídókaín / hýdrókortisón980369209
SenokotTöflursenna980533, 980541144
XyloproctEndaþarmskremlídókaín / hýdrókortisón980377142
Quinine sulfateTöflurkínín975592101
MiralaxLausnarduftpólýetýlen glýkol95882980
Alimemazine orifarmDroparalímemazín98278775
Glycerol infantEndaþarmsstílarglýceról94485271
Levome-promazine orion (25 mg)Töflurlevómeprómazín98199566
Trimipramin neuraxpharmTöflurtrímipramín97969364
RohypnolFilmuhúðaðar töflurflúnítrazepam98059151
Bromam (6 mg)Töflurbrómazepam98462651
ColchicineTöflurkolkisín97537848
NozinanTöflurlevómeprómazín97986748
Levome-promazine orion (5 mg)Töflurlevómeprómazín98095546
MogadonTöflurnítrazepam98116943
Morfin "dak"Töflurmorfín96918143
CondylineHúðlausnpódófýllótoxín97583142
RinexinForðatöflurfenýlprópanólamín98279539
BetapredLausnarduftbetametasón00799739
MethoprazineTöflurlevómeprómazín98119338
PeriactinTöflurcýpróheptadín96411538
Bromam (3 mg)Töflurbrómazepam40766835
Síðast uppfært: 14. desember 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat