Undanþágulyf sem oftast var ávísað í september 2026

Mikilvægt er að lyf, sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu, verði skráð og/eða markaðssett

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja, með það að markmiði að koma í veg fyrir að lyfjaskortur hafi áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga markaðssettum lyfjum.

Áfram er markmið Lyfjastofnunar, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð og/eða markaðssett. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu og/eða markaðssetningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Hér fyrir neðan er listi yfir þau tuttugu undanþágulyf sem læknar ávísuðu oftast í september 2026. Engir undanþágulyfseðlar voru afgreiddir í mánuðinum vegna lyfjaskorts.

Athygli skal vakin á því að í sérstökum tilfellum getur Lyfjastofnun heimilað lyfjafræðingum apóteka að breyta lyfjaávísun læknis á tiltekið lyf þannig að ávísunin gildi fyrir það undanþágulyf sem búið er að heimila. Heimildin er veitt að undangengnu mati á öryggi við slíka breytingu. Úrræðið er einungis notað þegar ljóst þykir að án aðgerða kæmi upp íþyngjandi staða fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Í þeim tilfellum eru ávísanirnar hefðbundnar þó að um undanþágulyf sé að ræða við afgreiðslu og koma því ekki fram á listanum sem fylgir.

Tuttugu undanþágulyf sem oftast var ávísað í september 2026

LyfjaheitiATCLyfjaformVirkt
innihaldsefni
Fjöldi
afgr.ávísana
1PROPRANOLOLC07AA05filmhtflPropranololum278
Samtals278
2FINACEAD10AX03hlaupAcidum azelaicum114
Samtals114
3MiralaxA06AD15lausndufMacrogolum112
Samtals112
4SEM MIXTÚRA - FORSKRIFTARLYFR05DA20mixtúracombinations102
Samtals102
5PROPRA-RATIOPHARMC07AA05filmhtflPropranololum97
Samtals97
6REGAIN FORTED11AX01áburðurMinoxidilum97
Samtals97
7CLONIDINEN02CX02töflurClonidinum96
Samtals96
8SENEASEA06AB06töflurSenna96
Samtals96
9DOCITONC07AA05filmhtflPropranololum83
forðahlkPropranololum5
Samtals88
10Levomepromazine OrionN05AA02töflurLevomepromazinum85
Samtals85
11PERIACTINR06AX02töflurCyproheptadinum84
Samtals84
12Quinine SulfateP01BC01töflurChininii84
Samtals84
13PrednisolonH02AB06töflurPrednisolonum77
Samtals77
14HIRUDOID SALVEC05BA01kremHeparinoidum76
Samtals76
15CONDYLINED06BB04húðlausnPodophyllotoxinum66
Samtals66
16AtaraxN05BB01filmhtflHydroxyzinum32
mixtúraHydroxyzinum31
Samtals63
17LargactilN05AA01töflurChlorpromazinum59
Samtals59
18OxybutininG04BD04töflurOxybutyninum55
Samtals55
19SKINOREND10AX03kremAcidum azelaicum54
Samtals54
20Morfin "DAK"N02AA01töflurMorphinum53
Samtals53

Síðast uppfært: 6. október 2026
Var efnið hjálplegt Já Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat