Undanþágulyfið Theralene innkallað

Sjúklingar sem fengið hafa lyfið afhent eru hvattir til að skila pakkningunni í næsta apótek

Lyfjastofnun hefur ákveðið að innkalla undanþágulyfið Theralene. Innköllunin nær til lyfjadreifingarfyrirtækja, apóteka og sjúklinga. Lyfið er mixtúra/dropar og inniheldur alímemazín 40 mg/ml í 30 ml flösku. Umbúðir og fylgiseðill lyfsins eru á frönsku. Ástæða innköllunarinnar er sú að fyrirmæli lækna um skammtastærðir lyfsins samanborið við sprautu sem fylgir lyfinu, geta verið misvísandi. Þá er merking á sprautu sem fylgir lyfinu ekki í samræmi við fylgiseðil. Þessar misvísandi upplýsingar hafa og geta leitt til ofskömmtunar lyfsins með tilheyrandi eitrunaráhrifum. Lyfið er m.a. notað við svefntruflunum barna og fullorðinna.


Lyfjastofnun hefur haft samband við öll apótek sem hafa afhent lyfið og þau beðin um að hafa samband við þá einstaklinga sem fengið hafa lyfið afhent. Þeim sem hafa fengið lyfið afhent er eindregið ráðlagt að skila pakkningunni í næsta apótek.


Unnið er að því að upplýsa lækna sem ávísað hafa lyfinu um málið.


Lyfið Theralene var útvegað í kjölfar skorts á öðru óskráðu lyfi, Alimemazine Orifarm. Alls hafa 66 pakkningar farið í dreifingu til apóteka frá 30. júní sl. og fjöldi einstaklinga sem fengið hafa lyfið afgreitt er um tuttugu talsins.

Síðast uppfært: 27. júlí 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat