Orðið hefur vart við falsað Xanax í umferð á Íslandi. Virka efnið í Xanax er alprazólam en í falsaða lyfinu er hvorki alprazólam né önnur bensódíazepín, heldur mun sterkara slævandi efni, medetómidín.
Falsaða lyfið er í hylkjum, ekki töflum
Venjulegt Xanax er á töfluformi, selt sem hvítar töflur, en falsaða lyfið er í samsettum hvítum hylkjum.

Medetomidín er slævandi dýralyf
Medetómidín er virka efnið í ýmsum slævandi og verkjastillandi lyfjum sem eru aðallega er notuð í dýralækningum. Lyfið er gjarnan notað eitt sér eða blandað öðrum lyfjum í minni aðgerðir eða sem undanfari svæfingar hjá dýrum.
Getur hægt á öndun og hjartslætti
Medetómidín getur einkum og sér í lagi verið hættulegt fyrir hjartað, en efnið hægir á hjartslætti og lækkar blóðþrýsting. Þetta gerir ofskömmtun sérlega hættulega og flókna í meðferð.
Áhætta af notkun falsaða lyfsins
- Mikil hætta á ofskömmtun
- Önnur áhrif en búast mætti við af Xanax (alprazólam)
- Hægur hjartsláttur og lágur blóðþrýstingur
- Svimi, skert hreyfigeta og ruglástand
- Ógleði, minnisleysi, syfja og skert meðvitund í langan tíma
Verði vart einhverra þeirra einkenna sem nefnd eru hér að ofan, skal þegar í stað hafa samband við Neyðarlínu í síma 112.
Verið ekki ein, látið vini vita.
Aðrir viðbragðsaðilar
- Landspítalinn – bráðavaktin, (geðdeild, fíkniþjónusta) - 543 1000
- Heilsugæslan – 1700
- Læknavaktin – 1770
- Ylja – ef við á
Leita má til Ylju eða Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði til að fá greiningu á efninu.
Viðvörunin er send út á vegum starfshóps um samræmingu gagna og viðvaranir við fíkniefnafaraldri.