Varað við notkun tíaneptíns án samráðs við lækni

Matvælastofnun og Lyfjastofnun vara við neyslu
á tianeptine og annarra efna sem seld eru á netinu undir heitinu Nootropics og
hafa mörg hver lyfjavirkni. Nootropics eru efni sem sögð eru örva
heilastarfsemi og eru algeng í netsölu erlendis frá. Þau innihalda í sumum
tilvikum lyfjavirk efni sem geta verið hættuleg heilsu ef þau eru notuð án
samráðs við lækni. Talið er að einstaklingur hafi nýlega látist hérlendis vegna
inntöku tianeptine.

Efnið tianeptine sulphate fannst í fórum einstaklingsins
og telja læknar að það kunni að hafa valdið dauða hans. Ekki er hægt að veita nánari
upplýsingar um atvikið. Ekki er að fullu
ljóst hvort efnið sem einstaklingurinn tók og innihélt tianeptine hafi verið
flutt inn sem lyf eða fæðubótarefni. Eins er óljóst hvort viðkomandi hafi flutt
inn efnið sjálfur og hve lengi hann hafi notað það. Tianeptine er lyf notað við
þunglyndi. Tianeptine er ekki með markaðsleyfi á Íslandi og því engin lyf til
sölu á Íslandi sem innihalda efnið. Það er hins vegar með markaðsleyfi
sumstaðar í Evrópu, Asíu og Suður Ameríku.

Einföld leit á netinu leiðir í ljós að auðvelt
er að nálgast tianeptine í gegnum erlendar vefverslanir. Þannig er hægt að
kaupa efnið frá Evrópu, Bandaríkjunum og öðrum ríkjum. Yfirleitt er tianeptine
ekki selt sem lyf heldur markaðssett sem fæðubótarefni. Efnið virðist einnig
vera markaðssett án skilgreiningar á því hvort um lyf eða fæðubótarefni sé að
ræða. Rétt er að benda á að ólíkar reglur er að finna í mismunandi ríkjum um hvort
efni séu skilgreind sem fæðubótarefni eða lyf. Ekki eru gerðar jafn ríkar
kröfur til framleiðslu fæðubótarefna eins og gerist með lyf. Því skal ávallt
gæta varúðar við kaup og notkun slíkra efna, einkum ef þau eru keypt erlendis
eða í gegnum erlendar vefverslanir.

Matvælastofnun og Lyfjastofnun vara við notkun
á vörum sem innihalda tianeptine, sérstaklega ef efnið er ekki notað í þeim
tilgangi sem upphaflega var ætlað, þ.e. sem lyf við þunglyndi í skömmtum skv.
læknisráði. Röng inntaka lyfja getur valdið aukaverkunum og í versta falli
dauða. Því er mikilvægt að hafa ávallt samráð við lækni áður en lyfseðilsskyld
lyf eru notuð og fylgja leiðbeiningum sem fylgja lausasölulyfjum.

Matvælastofnun sinnir innflutningseftirliti með
fæðubótarefnum og hefur stöðvað innflutning fjölda efna sem markaðssett eru
undir heitinu Nootropics og innihalda efnið tianeptine. Nootropics eru
fjölbreyttur flokkur efna með mismunandi efnainnihald. Innflutningur þeirra sem
fæðubótarefna er óheimill ef þau innihalda lyfjavirk efni.

Síðast uppfært: 22. febrúar 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat