Þann fyrsta mars sl. var ár liðið frá því að tilraunaverkefni um rafræna fylgiseðla hófst. Af því tilefni var rammi verkefnisins endurskoðaður og ákveðið í samráði við heilbrigðisráðuneytið að opna verkefnið aftur fyrir lyf sem voru á markaði áður en verkefnið hófst. Öll H-merkt lyf, sem gefin eru af heilbrigðisstarfsfólki á sjúkrastofnunum, eru því gjaldgeng í verkefnið að undangenginni umsókn til Lyfjastofnunar.
Verkefnið nær yfir alls þrjú ár. Tekið verður við umsóknum fyrir markaðssett lyf þann tíma sem verkefnið stendur yfir. Umsókn um þátttöku í verkefninu skal send á netfangið [email protected].
Mat verkefnisins
Könnun var lögð fyrir hlutaðeigandi heilbrigðisstarfsfólk við upphaf verkefnisins. Næst verður lögð könnun fyrir heilbrigðisstarfsfók um miðbik verkefnisins og svo við lok þess. Í könnuninni verður aðgengi að rafrænum fylgiseðlum metið, sem og notkun og lestur þeirra.
Til stóð að gera könnun meðal allra þeirra lyfjafyrirtækja sem taka þátt í verkefninu, bæði um miðbik og við lok þess. Nú hefur hins vegar verið tekin sú ákvörðun að eingöngu verður lögð könnun fyrir þau fyrirtæki sem fengu inngöngu fyrir lyf í verkefnið á fyrsta ári þess eða á tímabilinu 1. mars 2021 til 1. mars 2022. Þar verður lagt mat á annmarka sem upp kunna að koma og tengjast því að prentaður fylgiseðill fylgir ekki lyfi.