Viðbrögð við lyfjaskorti: óskað eftir ábendingum og tillögum – Frestur framlengdur

Í síðasta mánuði auglýsti Lyfjastofnun eftir ábendingum og tillögum frá hagsmunaaðilum um framkvæmd lækkunar á skráningar- og árgjöldum. Upphaflega var frestur til að skila inn ábendingum og tillögum veittur til 13. desember, með möguleika á framlengingu. Nú hefur fresturinn verið framlengdur til 15. janúar 2020.

Kallað er eftir ábendingum og tillögum frá hagsmunaaðilum til að bregðast við lyfjaskorti, með það að markmiði að fjölga markaðssettum lyfjum á Íslandi. Lyfjastofnun hefur heimild samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar til að lækka þessi gjöld þegar sérstaklega stendur á líkt og fram kemur í V. kafla þeirrar gjaldskrár sem gildir um lyf.

Markmiðið er að þessar aðgerðir gagnist sem best þeim sem á lyfjum þurfa að halda og stuðli að öryggi sjúklinga og velferð dýra. Hvetur Lyfjastofnun lyfjafyrirtæki, heilbrigðistarfsmenn, dýralækna og almenning til að senda stofnuninni ábendingar, tillögur eða hverjar aðrar þær upplýsingar sem kunna að koma að gagni við þessa vinnu.

Ábendingar og tillögur óskast sendar á netfangið [email protected] með efnislínunni: viðbrögð við lyfjaskorti.

Síðast uppfært: 19. desember 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat