Lyf við COVID-19

Eftirfarandi lyf hafa verið metin eða eru í mati hjá Lyfjastofnun Evrópu sem meðferðarúrræði gegn COVID-19

Átta lyf hafa verið samþykkt af Lyfjastofnun Evrópu til notkunar gegn COVID-19. Upplýsingum um samþykktar lyfjameðferðir verður miðlað á þessari síðu þegar breytingar verða.

Þrátt fyrir að markaðsleyfi hafi verið veitt fyrir þessi lyf í öllum aðildarríkjum ESB og EES er ekki þar með sagt að lyfin verði fáanleg alls staðar. Ákvarðanir um það hvar lyf skuli markaðssett fylgja í kjölfar umsókna um markaðsleyfi.

Hér á landi eru bæði forvarnir gegn og sjúkdómsmeðferð við COVID-19 á forræði sóttvarnalæknis og smitsjúkdómasérfræðinga Landspítalans, og reynt eftir fremsta megni að samræma aðgerðir fyrir íslenska heilbrigðiskerfið í heild.

Ekki er hægt að upplýsa um nánari tímalínur fyrir lyf sem eru í umsóknarferli eða áfangamati að svo stöddu því tímasetningar ráðast að stærstu leyti af því hvenær markaðsleyfishafar ná að senda inn fullnægjandi gögn svo hægt sé að meta umsóknirnar.

Síðast uppfært: 23. nóvember 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat