Afipran 10 mg

Skráða lyfið Afipran er fáanlegt aftur.

29. nóvember 2023

Skráða lyfið Afipran 10 mg er nú fáanlegt aftur.

18. október 2023

Skráða lyfið Afipran 10 mg 50 stk. er ófáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Afipran 10 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 994386 MCP STADA 10 mg 50 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Afipran 10 mg yfir í undanþágulyfið MCP STADA 10 mg gildir til 1. desember 2023.

Undanþágulyfið er í þýskum pakkningum og markaðsleyfishafinn er STADAPHARM GmbH. Heildsalan Distica sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 13. desember 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat