Undanþágulyfið Alimemazin Evolan 40 mg/ml dropar er fáanlegt hjá heildsölunni Parlogis. Lyfið er í sama styrkleika og undanþágulyfið Alimemazine Orifarm.
Lyfinu fylgir dropateljari með kvarða sem sýnir eftirfarandi skammtastærðir:
Kvarði á dropateljara | Magn alimemazin |
0,25 ml | 10 mg |
0,50 ml | 20 mg |
0,75 ml | 30 mg |
1,00 ml | 40 mg |
Athugið að kvarði á dropateljara sýnir magn í millilítrum en ekki dropafjölda.