Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml mixtúra og Amoxin 100 mg/ml mixtúra

Lyfið Amoxin er nú fáanlegt aftur hjá heildsölu. Von er á Amoxicillin Sandoz í sölu í byrjun næstu viku (viku 48).

26. nóvember 2021

Amoxin 100 mg/ml er nú fáanlegt aftur. Von er á Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml í sölu í næstu viku.

15. nóvember 2021

Lyfin Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml mixtúra og Amoxin 100 mg/ml mixtúra eru nú ófáanleg hjá heildsölu. Lyfin eru væntanleg aftur þann 23. nóvember. Verið er að leita leiða til þess að fá lyfin til landsins fyrr. Fréttin verður uppfærð þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.

Ráð til lyfjanotenda:

Enn eru til einhverjar birgðir í apótekum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.

Ráð til lækna og lyfjafræðinga:

Enn eru til einhverjar birgðir í apótekum. Aðrar mixtúrur sem innihalda amoxicillin í blöndum eru fáanlegar.

Síðast uppfært: 26. nóvember 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat