Amoxicillin Sandoz mixtúra

Markaðsetta lyfið er ófáanlegt hjá heildsölu, enn eru einhverjar birgðir fáanlegar í apótekum

4. desember 2024

Seinkun hefur orðið á afhendingu á Amoxicillin Sandoz. Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml í neðangreind undanþágulyf til 10. desember 2024.

Athugið að ekki ertu til birgðir af undanþágulyfjunum hjá heildsölu en undanþágulyfin eru fáanleg í einhverjum apótekum.

27. nóvember 2024

Vegna skorts á skráðu mixtúrunum sem innihalda eingöngu amoxicillin heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml mixtúrukyrni 60 eða 100 ml í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 996192 Amoxicilline 50 mg/ml 100 ml, í belgískum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins EG (Eurogenerics).
  • Vnr. 993049 Amoxicilline Forte 50 mg/ml 100 ml, í hollenskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Sandoz B.V.
  • Vnr. 996241 Amoxicillin 50 mg/ml 100 ml, í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Axapharm ag.

Athugið að undanþágulyfin eru helmingi veikari en skráða lyfið og því þurfa lyfjafræðingar að umreikna og tryggja réttar skammtastærðir þegar heimild þessi er nýtt.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Amoxicillin Sandoz yfir í undanþágulyfin gildir til 4. desember 2024.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Athugið að undanþágulyfin eru ekki fáanleg hjá heildsölu en stofnunin hefur upplýsingar um að einhverjar birgðir séu fáanlegar í apótekum.

Síðast uppfært: 4. desember 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat