30. nóvember 2022
Undanþágulyfið Co-Amoxi-Mepha 457 mg/5ml er nú einnig komið á bið. Ekki er unnt að útvega meira af lyfinu.
Skráða lyfið Amoxin Comp 80/11,4 mg/ml mixtúra er væntanlegt aftur í viku 49 (5. - 11. desember).
25. nóvember 2022
Skráða lyfið Amoxin Comp 80/11,4 mg/ml mixtúra er ófáanleg. Lyfið er væntanlegt aftur um miðjan desember.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Óskráð lyf er fáanlegt hjá heildsölunni Parlogis:
- Vnr. 989527 Co-Amoxi-Mepha 457 mg/5 ml (91,4 mg/ml)
Lyfjafræðingum í lyfjabúðum hefur ekki verið veitt heimild til að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Amoxin Comp í undanþágulyfið.