13. janúar 2022
Skráða lyfið Amoxin Comp 80/11,4 mg/ml mixtúra er nú ófáanlegt hjá heildsölu. Amoxin Comp mixtúra í erlendum umbúðum er væntanleg til landsins í lok næstu viku (viku 3).
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Mixtúrur sem innihalda amoxicillin án clavulanic sýru, Amoxin og Amoxicillin Sandos, eru fáanlegar. Von er á lyfinu til landsins í næstu viku.