Amoxin og Amoxicillin Sandoz mixtúra

Amoxin mixtúra er nú fáanleg aftur.

11. janúar 2023

Skráða lyfið Amoxin 100 mg/ml er nú fáanlegt aftur.

19. desember 2022

Vegna frekari tafa á sendingum af skráðu lyfjunum Amoxin mixtúru og Amoxicillin Sandoz mixtúru hefur Lyfjastofnun ákveðið, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, að framlengja heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Amoxin og Amoxicillin Sandoz í neðangreind undanþágulyf til og með 10. janúar 2023.

9. desember 2022

Tafir eru á sendingum af Amoxin mixtúru og Amoxicillin Sandoz mixtúru. Því hefur Lyfjastofnun ákveðið, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, að framlengja heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Amoxin og Amoxicillin Sandoz í neðangreind undanþágulyf til og með 27. desember 2022.

11. nóvember 2022

Tvö undanþágulyf eru fáanleg hjá heildsölu, Amoxi-Mepha 50 mg/ml og Infectomox 100 mg/ml.

Þar sem mikið álag er á ýmsum starfseiningum heilbrigðiskerfisins og engin skráð mixtúra sem inniheldur eingöngu amoxicillin fáanleg, heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Amoxin 100 mg/ml eða Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 991217 Amoxi-Mepha 50 mg/ml 100 ml
  • Vnr. 991209 Infectomox 100 mg/ml 100 ml

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Amoxin eða Amoxicillin Sandoz yfir í undanþágulyfin gildir til 12. desember 2022.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Undanþágulyfið Infectomox 100 mg/ml er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins INFECTOPHARM Arzneimittel
und Consilium GmbH. Lyfið Amoxi-Mepha 50 mg/ml er í svissneskum umbúðum og markaðsleyfi hafi lyfsins er Mepha Pharma AG.

Athugið að lyfið Amoxi-Mepha 50 mg/ml er helmingi veikara en skráðu lyfin og því þurfa lyfjafræðingar að umreikna og tryggja réttar skammtastærðir þegar heimild þessi er nýtt.

10. nóvember 2022

Undanþágulyfið Infectomox 100 mg/ml er nú fáanlegt hjá heildsölu en birgðir af undanþágulyfinu Amoxi-Mepha 50 mg/ml eru búnar hjá heildsölu. Von er á annarri sendingu af báðum lyfjunum í byrjun næstu viku.

Undanþágulyfið Amoxihexal Forte er ekki til hjá heildsölu og er ekki væntanlegt.

Lyfjafræðingum í apóteki er ekki heimilt að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Amoxin 100 mg/ml og Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml í undanþágulyf sem stendur. Málið er til skoðunar og eru nánari upplýsingar væntanlegar á morgun.

3. nóvember 2022

Skráðu lyfin Amoxin 100 mg/ml mixtúra og Amoxicillin Sandoz 100 mg/ml mixtúra eru ófáanleg hjá heildsölu.

Ráð til lækna og lyfjafræðinga:

Þann 3. nóvember var undanþágulyfjunum Amoxi-Mepha og Infectomox bætt við endurútgefna lyfjaverðskrá.

Verið er að vinna í að útvega birgðir af þessum undanþágulyfjum. Fréttin verður uppfærð þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.

Síðast uppfært: 11. janúar 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat