Atenolol Mylan 25 mg og 50 mg

Skráða lyfið Atenolol Mylan 25 mg er nú fáanlegt aftur.

11. janúar 2023

Skráða lyfið Atenolol Mylan 25 mg 98 stk. er nú fáanlegt aftur.

20. desember 2022

Skráða lyfið Atenolol Mylan er nú væntanlegt í byrjun janúar 2023. Því hefur Lyfjastofnun ákveðið, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, að framlengja heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í Atenolol Parlogis til 10. janúar 2023.

14. desember 2022

Vegna áframhaldandi tafa á sendingum af Atenolol Mylan framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í Atenolol Parlogis til 20. desember 2022.

28. nóvember 2022

Skráða lyfið Atenolol Mylan 50 mg 98 stk. er nú væntanlegt til landsins í desember.

Því hefur Lyfjastofnun ákveðið, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, að framlengja heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í Atenolol Parlogis til 15. desember 2022.

8. nóvember 2022

Enn frekari tafir eru á sendingum af Atenolol Mylan 25 mg og 50 mg 98 stk. pakkningum. Því hefur Lyfjastofnun ákveðið, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, að framlengja heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í Atenolol Parlogis til 28. nóvember 2022.

20. október 2022

Nýtt undanþágulyf hefur verið útvegað þar sem ekki var hægt að útvega meira af undanþágulyfinu Atenolol AL 50 mg. Nýtt undanþágulyf, Atenolol AbZ 50 mg er í þýskum umbúðum og markaðsleyfishafi lyfsins er AbZ-Pharma GmbH.

Heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í Atenolol Parlogis gildir einnig fyrir nýtt undanþágulyf og er í gildi til 8. nóvember 2022.

30. september 2022

Enn frekari tafir eru á sendingum af Atenolol Mylan 25 mg og 50 mg 98 stk. pakkningum. Því hefur Lyfjastofnun ákveðið, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, að framlengja heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í Atenolol Parlogis til 8. nóvember 2022.

31. ágúst 2022

Sendingar af Atenolol Mylan 25 mg og 50 mg hafa tafist frekar en nú er lyfið væntanlegt til landsins í október.

Vegna áframhaldandi skorts hefur heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Atenolol Mylan yfir í Atenolol Parlogis verið framlengd til 1. október 2022.

17. ágúst 2022

Undanþágulyfið Atenolol Cresent 25 mg 28 stk. (vnr. 990186) er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráða lyfinu Atenolol Mylan heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 990186 Atenolol Cresent 25 mg 28 stk. (Atenolol Parlogis)


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Atenolol Mylan yfir í Atenolol Parlogis gildir til 1. september 2022.

Tilmæli eru til lyfjafræðinga að upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Undanþágulyfið er í írskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Cresent Pharma Limited. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

1.júlí 2022

Undanþágulyfið Atenolol AL 50 mg 100 stk. (vnr. 990061) er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráða lyfinu Atenolol Mylan heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Atenolol Mylan í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 990061 Atenolol AL 50 mg 100 stk. (Atenolol Parlogis)


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Atenolol Mylan yfir í Atenolol Parlogis gildir til 1. september 2022.

Tilmæli eru til lyfjafræðinga að upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Aliud Pharma GmbH. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

16. júní 2022

Skráða lyfið Atenolol Mylan 98 stk. er ófáanlegt í 25 mg styrkleika og 50 mg styrkleika. Gert er ráð fyrir að skortur vari fram til fjórða ársfjórðungs 2022.

Ráð til lækna og lyfjafræðinga:

Undanþágulyf er væntanlegt til landsins í næstu viku (viku 25). Fréttin verður uppfærð þegar lyfið er komið til heildsölu.

ð til lyfjanotenda:

Enn eru birgðir fáanlegar í apótekum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.

Síðast uppfært: 11. janúar 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat