Clarithromycin Krka 500 mg og Clarithromycin Alvogen 500 mg

Markaðssettu lyfin Clarithromycin Krka 500 mg og Clarithromycin Alvogen 500 mg.

28. ágúst 2024

Markaðssettu lyfin Clarithromycin Krka 500 mg og Clarithromycin Alvogen 500 mg eru ófáanleg. Clarithromycin Krka 500 mg er væntanlegt aftur í október en Clarithromycin Alvogen hættir. Undanþágulyfið Clarithromycin 500 mg filmuhúðaðar töflur hefur verið útvegað.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Clarithromycin Krka 500 mg og Clarithromycin Alvogen 500 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 998205 Clarithromycin 500 mg filmuhúðaðar töflur 14 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Clarithromycin Krka 500 mg og Clarithromycin Alvogen 500 mg í ofangreint undanþágulyf gildir til 2. október 2024.

Um er að ræða tvö undanþágulyf sem bæði eru í þýskum pakkningum. Markaðsleyfishafar lyfjanna eru STADAPHARM GmbH annars vegar og hins vegar Basics GmbH. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu lyfjanna.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 28. ágúst 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat